Skilmálar þjónustu

Almennir skilmálar

Almennt

Seljandi er María Anna Guðmundsdóttir kt:280970-3369. Funafold 79 112 Reykjavík. Sími 8636151, ma.handverk@ gmail.com

Öll verð á síðunni eru birt með fyrirvara um innsláttarvillur.

Mhandverk áskilur sér rétt til þess að hætta við pantanir t.d. vegna rangra verðupplýsinga ásamt því að breyta verðum eða hætta með ákveðnar vörutegundir fyrirvaralaust. Athuga að verð geta hækkað fyrirvaralaust vegna gengishækkunar á erlendri vöru.

Vörur í vefverslun mhandverk eru eingöngu til persónulegra nota. Undir engum kringumstæðum er heimilt að stunda endursölu á vörum mhandverk án tilskilinna leyfa. Mhandverk áskilur sér rétt til að stöðva afgreiðslu pantana eða halda eftir hluta þeirra ef talið er að þær brjóti í bága við þessa skilmála. 

Reynt er eftir bestu getu að hafa réttar upplýsingar og vörumyndir í vefverslun. Tilvik geta átt sér stað þar sem um minniháttar litamun eða umbúðamun er að ræða. Að öðru leyti eru upplýsingar birtar með fyrirvara um innsláttarvillur eða minniháttar uppfærslutafir.

Afhending vöru

Allar pantanir eru afgreiddar tvisvar í viku mánudaga og föstudaga. Sé varan ekki til á lager mun María Anna hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar. Af öllum pöntunum dreift af Dropp gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Dropps um afhendingu vörunnar. Mhandverk ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Ef vara týnist í pósti eða verður fyrir tjóni frá því að hún er send frá mhandverk til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda.Verð á vöru og sendingakostnaður

Öll verð í vefverslun eru í íslenskum krónum með virðisaukaskatti. Sendingakostnaður bætist síðan við áður en greiðsla fer fram. Við sendum allar vörur með Dropp.

Mhandverk er eigandi vörunnar þar til andvirði hennar er að fullu greitt. Allar greiðslur fyrir vörur gegnum vefverslun fara í gegnum ?.

Lög og varnarþing

Skilmála þessa ber að túlka í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna skilmála þessa skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur. Að öðru leyti en að ofan greinir gilda um skilmála þessa ákvæði gildandi laga um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga (nú nr. 77/2000), ákvæði laga um neytendasamninga nr. 16/2016, ákvæði laga um lausafjárkaup nr. 50/2000 eftir því sem við getur átt og ákvæði laga um neytendakaup nr. 48/2003. Allir frestir sem neytendur eiga rétt á í lögum um neytendasamninga byrja þegar móttaka vöru hefur átt sér stað.